Thursday, October 29, 2015

Oft ég undrast

Oft ég undrast kæri Jesús
að þú fórst úr himna dýrð
til að búa meðal manna
máttir þola fátækt, rýrð.

Já við þökkum þér

ó, Jesús þessi helgu góðu jól,
þökkum fyrir þínar gjafir
þú ert okkar bjarta sól.

Já, þú fórst frá föður þínum

frá þeim stað sem bestur er,
þótt þú vissir hvað menn
vildu við þig gera‘ á jörðu hér.

Já við þökkum þér

ó, Jesús þessi helgu góðu jól,
þökkum fyrir þínar gjafir
þú ert okkar bjarta sól.

Mons Leidvin Takle – Þórdís Ágústsdóttir

Skín yfir lög og láð

Skín yfir lög og láð ljómandi stjarna,
lýsir í lengd og bráð, leiðsögn Guðs barna.
Birtist í Betlehem, bendir á staðinn
sem hirðarnir heyra frá; hugfangnir glöggt sjá
skínandi stjörnu, skínandi stjörnu.

Niða dimm nóttin í náttmyrkra landi,

allt bindur enn á ný, í rökkurbandi.
Hirðar þar hvílast rótt, heyra um barn í nótt,
birtist þeim Drottins dýrð, dýrlegir ómar;
stjarnan í kvöldsins kyrrð kraftmikil  ljómar.

Hjörðinni halda frá, hjálpræðis leita,

stjarnan á himni há, hjálp mun þeim veita.
Hvað sem nú hindrar þá, hvers konar ógn og vá,
ekkert þeim aftra má á þeirri götu;
lausnarann litið fá liggjandi‘ í jötu.

Alice Tegner – Gunnar J Gunnarsson

Í litla bænum Betlehem

Í litla bænum Betlehem,
þú barnið helga býrð.
Og yfir þér er allt svo bjart
og einskær himnadýrð.
Það birtir upp í bænum
og burt er hryggð og sorg.
Í dag sem þá má dýrð Guðs sjá
í Davíðs helgu borg.

Nú fæddur er á foldu Hann

sem frelsar alla menn.
Og englar sungu Drottni dýrð
og dýrð hans varir enn.
Á jólum son Guðs Jesús
í jötu lagður var.
Og allt var hljótt þá helgu nótt
og himnesk birta þar.

Kom konungs barn frá Betlehem

og bú í hjarta mér.
Ég tek á móti þér í trú
þér tign og lofgjörð ber.
Hjá hirðum út í haga þá
hljómaði undur vel: 
er nóttin löng kvað nýjan söng:
kom nú Immanúel.

Hve undur blítt og bjart og frítt

þú barnið Jesús ert.
Í auðmýkt þinni‘ og án þín hér
er allt svo lítils vert.
Já þú ert gjöf frá Guði
sem gefur líf og von.
Öll heilög jól um heimsins ból
við hyllum þig Guðs son.

Lewis H Redner – Þórdís Ágústsdóttir

Jól í hjarta

Jól í hjarta, jól vil ég já jól svo yndisleg
syngja vil ég söng í dag, já syngja jólalag
um þau jól er Jesús fæddist hér á jörðu
vonin glæddist: Fæddur er nú frelsarinn.

Jólahátíð helg og blíð, já heilög jólatíð

hirðar heyrðu englasöng, helg var nóttin löng
en þá heyrast fagrir hljómar, út um heiminn 
berast ómar; Barn er fætt í Betlehem.

Jól, mín jól í desember, ó jól við fögnum þér

og með englum syngjum við er opnast himins hlið
öll af hjarta heiðrum saman konung himna
þá er gaman; In excelsis gloría.

La la la la la la la…

Jólahátíð helg og blíð, já heilög jólatíð.

Hirðar heyrðu englasöng, helg var nóttin löng
en þá heyrast fagrir hljómar út um heiminn
berast ómar; Barn er fætt í Betlehem.

Jól, mín jól í desember, ó jól við fögnum þér

og með englum syngjum við er opnast himins hlið,
Öll af hjarta heiðrum saman konung himna
þá er gaman; In excelsis gloría.

Mons Leidvin Takle – Þórdís Ágústsdóttir