Í litla bænum Betlehem,
þú barnið helga býrð.
Og yfir þér er allt svo bjart
og einskær himnadýrð.
Það birtir upp í bænum
og burt er hryggð og sorg.
Í dag sem þá má dýrð Guðs sjá
í Davíðs helgu borg.
Nú fæddur er á foldu Hann
sem frelsar alla menn.
Og englar sungu Drottni dýrð
og dýrð hans varir enn.
Á jólum son Guðs Jesús
í jötu lagður var.
Og allt var hljótt þá helgu nótt
og himnesk birta þar.
Kom konungs barn frá Betlehem
og bú í hjarta mér.
Ég tek á móti þér í trú
þér tign og lofgjörð ber.
Hjá hirðum út í haga þá
hljómaði undur vel:
er nóttin löng kvað nýjan söng:
kom nú Immanúel.
Hve undur blítt og bjart og frítt
þú barnið Jesús ert.
Í auðmýkt þinni‘ og án þín hér
er allt svo lítils vert.
Já þú ert gjöf frá Guði
sem gefur líf og von.
Öll heilög jól um heimsins ból
við hyllum þig Guðs son.
Lewis H Redner – Þórdís Ágústsdóttir
No comments:
Post a Comment